Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 7. 2017 | 09:00

Champions Tour: Daly sigurlaus frá 2004 er í forystu á Insperity mótinu!

John Daly sagði að hann væri ekki vanur að sjá sjálfan sig í efsta sæti á skortöflu.

En Daly á nú tækifæri á að gera nokkuð sem honum hefir ekki tekist í lengri tíma og það er að sigra í golfmóti.

Daly kom í hús á 2. hring á glæsilegum, skollalausum 7 undir pari, 65 höggum á Insperity Invitational og er með 1 höggs forystu á Kenny Perry.

Samtals er Daly búinn að spila samtals á 11 undir pari, 133 höggum (68 65).

Þetta er ekki vanastaður að vera á. Þetta verður frábært,“ sagði Daly.

Það verður það eflaust ef Daly heldur áfram að pútta eins og hann hefir verið að gera, en Daly sagðist vera með pútter „sem hann algerlega elskaði og rúllið væri gott og maður veit aldrei, í næstu viku nota ég hann kannski ekk,i en mér líkar rúllið með þessum pútter núna.“

Sjá má stöðuna á Inspertiy Invitational með því að SMELLA HÉR: