Catriona Matthew byggir í Skotlandi
Hvað eiga Donald Trump og Catriona Matthew sameiginlegt? Bæði eru að byggja í Skotlandi; Trump golfstað og Catriona, hús… þ.e.a.s ef samþykkt verður.
Catriona Matthew, sigurvegari á Opna breska kvenrisamótinu 2009 vonast til þess að fara að geta hafist handa við byggingu húss á sögulega golfsvæðinu North Berwick í Skotlandi.
Catriona og eiginmaður hennar, Graeme, vonast til þess að fá samþykki skipulagsyfirvalda East Lothian til þess að brjóta niður Links Lodge á Links Road til þess að byggja sér nútímalegra hús.
Skipulagsyfirvöld hafa þegar mælt með að hún hljóti vilyrði til þessa.
Bæjarráðsmaðurinn David Berry bað um umræður fyrir bygginganefnd vegna þess að það að fjarlægja og byggja nýtt hús á þessum fræga stað verður sjáanlegt frá West Links golfvellinum og af ströndinni.
Í skipulagsskýrslu kemur fram að nýja hús Catrionu sé nútímahönnun með stórum glerjuðum svæðum og eins-hliðar-hallandi þaki (ens. sloping mono-pitch roof).
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
