Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2013 | 20:00

Caroline fylgist með sigurlausum Rory í Dubaí

Þessi frétt er í raun ekki frétt ekki skrifuð vegna fréttarinnar – mun heldur til þess að birta mynd af Caroline Wozniacki þar sem hún er í áhorfendastúkunni á golfvelli Jumeirah golfstaðarins að fylgjast með Rory McIlroy, kærastanum sínum á lokahring DP World Tour Championship.

En það var ekki eins gaman í þetta sinn og í fyrra þegar Rory vann í mótinu í fyrra og varð efstur á peningalistum beggja vegna Atlantsála.

Nú var Caro hálffalin bakvið stór svört gleraugu.

Rory lauk keppni í mótinu T-5 þ.e. deildi 5. sæti með þeim Lee Westwood og Luke Donald.

Lokahringur Rory var nokkuð góður 5 undir pari, 67 högg, en hann var engu að síður samtals 10 höggum á eftir sjóðheitum Henrik Stenson.