Magnús Birgisson, golfkennari, að kenna ungum kylfingi undirstöðuna í SNAG. Mynd: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2015 | 08:00

Byrjaðu í golfi hjá Magga Birgis – Fyrir byrjendur og lengra komna – 1. sept. í Endurmenntun HÍ

Í samstarfi við Golfsamband Íslands og Hissa, ráðgjafar- og fræðslumiðstöð um golf.

Nú er hægt að byrja í golfi í Endurmenntun. Á námskeiðinu eru grunnatriðin í golfi kennd með Starting New At Golf (SNAG) golfkennslukerfinu sem hefur slegið í gegn út um allan heim.

Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, æfinga og leikja.

Golf er vinsæl íþrótt meðal allra aldurshópa og það er hægt að byrja að spila golf hvenær sem er á lífsleiðinni.

Á námskeiðinu verður farið í alla þá grunnþætti sem nauðsynlegir eru fyrir fyrstu skrefin á golfvellinum.

Á NÁMSKEIÐINU ER FJALLAÐ UM:
• Grunnhreyfingar í golfsveiflunni
• Öll meginhögg í golfi
• Siði og grunnreglur í golfleiknum
• Venjur og hugarfar við golfiðkun

ÁVINNINGUR ÞINN:
• Kynnast golfleiknum á auðveldan og skemmtilegan hátt
• Læra og æfa grunnhreyfingar í golfi við þægilegar aðstæður
• Kynnast margverðlaunuðu kennslukerfi- og búnaði SNAG
• Öðlast skilning á helstu siðum, venjum og grunnreglum golfsins

FYRIR HVERJA:
Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á að læra grunnhreyfingar og kynnast siðum og venjum í golfi við þægilegar aðstæður.

Námskeiðið er einnig fyrir þá sem vilja kynna sér sérstaklega SNAG kerfið.

Eftir námskeiðið eru þátttakendur betur undirbúnir fyrir áframhaldandi golfkennslu hjá golfkennurum og t.d. til að taka
þátt í skemmtigolfmótum.

NÁNARI UPPLÝSINGAR 

SKRÁ MIG  Snemmskráning til 1. september

KENNSLA/UMSJÓN

Magnús Birgisson PGA golfkennari og SNAG master leiðbeinandi

HVENÆR

Fim. og þri. 10., 15. og 17. sept. kl. 20:00 – 22:00 (3x).
Kennt er 17. sept. í æfingahúsnæði GSÍ

HVAR
Í æfingahúsnæði GSÍ og Endurmenntun,
Dunhaga 7

VERÐ VIÐ SNEMMSKRÁNINGU

22.900 KR.

ALMENNT VERÐ

25.200 KR.

HAFÐU SAMBAND
endurmenntun@hi.is
SÍMI
525 4444

 

Endurmenntun Háskóla Íslands – Dunhaga 7, 107 Reykjavík –
www.endurmenntun.is