Bubba: „Ping hanskinn hjálpar til við að kylfan helst í höndunum á þér“ – Myndskeið
PING framleiðir 3 tegundir af golfhönskum: Ping Sensor Tour (sem er dýrasti hanskinn ($18 dollara út úr golfverslun í Bandaríkjunum) úr leðri og með spandex bandi við fingurræturnar, sem gerir hanskann sveigjanlegri); Ping Sensor Sport (aðeins ódýrari ($ 16) en Tour hanskinn, með minna spandex sveigjanleika en enn úr leðri). Loks er það ódýrasti hanskinn, Ping Sensor Tech ($ 12), sem ekki er úr leðri heldur lycra efni og með ekkert svart spandex band. (Best er að sjá muninn á hönskunum á myndinni hér að neðan).
Þegar Bubba Watson gerði auglýsingasamning við PING um að auglýsa hanskann (en hann notar að sjálfsögðu Sensor Tour) var svo um samið að PING veitti árlega umsöndum fjárhæðum til góðgerðarverkefna sem Bubba styrkir.
Hluti samningsins fól í sér að Bubba færi út á völl og kynnti hanskann fyrir hinum almenna kylfingi.
Hann kom að einum kylfingi, sem gekk eitthvað brösótt hjá a.m.k. henti sá kylfunni sinni frá sér í reiðikasti. Bubba kom aðvífandi á golfbíl með Ping hanska til að gefa manninum og sagði við hann: „Ping hanskinn hjálpar til við að kylfann helst í höndunum á þér!“
Það er einmitt það sem Ping hanskinn gerir þó ekki sé það fyrirséð í þessum tilvikum 🙂 – hann eykur gripið eins og góðir hanskar eiga að gera!
Lítil loftgöt á fingurhluta Ping hanskans hjálpa einnig til við það með því að loft leiki um fingurna og koma þannig í veg fyrir að höndin sé blaut af svita innan í hanskanum, sem er e.t.v. enn mikilvægara erlendis en hér þar sem verið er að leika við heitari aðstæður. Allt miðar þetta að því að stuðla að góðu gripi á kylfunum.
Hér má sjá myndskeið af því þegar Bubba fer út á völlinn til að kynna Ping golfhanskann SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

