Bubba með sama matseðil á Champions Dinner og í fyrra skiptið
Núverandi Masters meistari Bubba Watson fær að setja saman matseðilinn á Masters Champions Dinner, sem einmitt fer fram í kvöld.
Og Bubba ætlar bara að hafa það einfalt.
Hann upplýsti í morgun að hann ætli að bera fram nákvæmlega það sama og hann var með í fyrra skiptið, þegar hann vann fyrri græna jakkann sinn 2013 þ.e.: Caesar salat, grillaðan kjúkling, grænar baunir, kartöflustöppu, maís og makkarónur í osti með brauði.
Þetta er nammilegur matseðill sem Bubba setur saman og vafalaust góður en þó nokkuð „leiðigjarn“ miðað við marga ævintýralega rétti sem margir fyrrum sigurvegarar Masters móta hafa boðið upp á.
Þannig var Sandy Lyle með haggis 1989; Jose María Olazabal var með Paellu 1995 og Mike Weir var með elgskjöt og villisvín.
Billy Horschel sagði í gríni við USA Today að ef hann ynni í ár á Masters myndi hann vera með Oreo kex 2016 á matseðli sínum.
Já á matseðli Horschel myndi vera eftirfarandi að hans sögn: „Sushi, M&M smákökur. Oreo-kökur og mjólk. Ég er ekki viss um hvort þeir hafi nokkru sinni verið með tveggjakremlags Oreo kökur þarna (á Augusta National)“ – Golf1: Vafalaust einhver klúbbfélaginn þar sem framleiðir þær (Oreo kökur!!! 🙂 )
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
