Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2015 | 15:30

Bubba með milljón $ úr

Dýrasti hlutur sem Bubba Watson verður með á Opna breska sem hefst á morgun verður ekki einhver kylfan í poka hans heldur armbandsúr hans.

Watson verður með Richard Mille limited edition RM 38-01 úr sem er sérstaklega hannað fyrir Bubba.

Úrið sýnir tímann eins og úr gera en einnig er hann með G-skynjara sem mælir G-kraftinn sem framleiddur er í kraftalegri sveiflu Bubba.

Flott „touch“ er Masters grænn litur úrsins, sem er auðvitað vegna þess að Bubba hefir tvívegis unnið Masters risamótið.

Richard Mille hefir áður hannað svipað úr fyrir tennisstjörnuna Rafael Nadal, en hann er oft með úrið þegar hann spilar.