Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2021 | 23:00

Björgvin er Íslandsmeistari 65+

Björgvin Þorsteinsson, úr Golfklúbbi Akureyrar, er Íslandsmeistari í flokki +65 ára og eldri í karlaflokki 2021. Björgvin lék á 231 höggi en Sæmundur Pálsson, GR, varð annar á 238 höggum og Sigurður Aðalsteinsson, GÖ, varð þriðji.

Íslandsmót eldri kylfinga 2021 fór fram dagana 15.-17. júlí í Vestmannaeyjum.

Þeir, sem luku keppni í karlaflokki 65+ voru 31.

Mikill áhugi var á mótinu hjá keppendum og komust ekki allir inn í mótið sem sóttust eftir því.

Sjá má lokastöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: