Bjarki Pétursson, GB. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 30. 2018 | 14:00

Bjarki lauk keppni T-21 á Evrópumóti áhugakylfinga

Aron Snær Júlíusson úr GKG, Bjarki Pétursson úr GB og Gísli Sveinbergsson úr GK voru á meðal 144 keppenda á Evrópumót áhugamanna.

Mótið hófst á miðvikudag og fór fram á Royal Hague Golf & Country Club, í Hollandi.

Alls voru leiknar 72 holur á fjórum keppnisdögum og komust 60 efstu í gegnum niðurskurðinn að loknum þriðja keppnisdeginum.

Aron Snær og Gísli komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Það gerði hins vegar Bjarki og lék hann á samtals og landaði 21. sætinu!!! Glæsilegt hjá Bjarka!!!

Lokaskor Bjarka var 1 undir pari, 287 högg (71 75 69 72)

Sjá má lokastöðuna á Evrópumóti áhugamanna með því að SMELLA HÉR:

Það var að miklu að keppa á þessu móti. Sigurvegarinn, Nicolai Hojgaard, frá Danmörku, sem lék á samtals 7 undir pari, fékk keppnisrétt á Opna breska meistaramótinu, sem fram fer á Carnoustie í júlí á þessu ári.

Þetta var í 31. skipti sem mótið fór fram en það hafði ekki farið fram í Hollandi frá árinu 1986 þegar það fór fyrst fram.

Margir þekktir kylfingar hafa sigrað á þessu móti. Má þar nefna Rory McIlroy, Sergio Garcia, Victor Dubuisson og Stephen Gallacher.

Alfie Plant frá Englandi sigraði á þessu móti í fyrra þegar það fór fram á Walton Heath vellinum. Plant hafði þar betur í bráðabana gegn ítölsku kylfingunum Luca Cianchetti og Stefano Mazzoli. Cianchetti hafði titil að verja á þessu móti í fyrra. Plant lék því á Opna breska meistaramótinu í fyrra á Royal Birkdale þar sem hann stóð uppi sem sigurvegari í keppni áhugakylfinga – og fékk Silfurskjöldinn.

Royal Hague er einn af topp 5 völlum Evrópu og einn af 100 bestu golfvöllum heims. Þetta er strandvöllur með krefjandi aðstæður fyrir keppendur.

Texti og mynd: GSÍ