Birgir Leifur spilaði 12 holur
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, náði að spila 12 holur í gær á 1. hring Open Blue Green Côtes d’Armor Bretagne mótinu, sem frestaðist í gær um 4 tíma vegna þoku. Mótið fer fram í Pléneuf í Frakklandi.
Birgir Leifur er enn á 3 undir pari eftir 12 holur og vonandi að hann haldi því skori eða bæti það jafnvel!
Birgir Leifur hóf leik á 10. teig og byrjaði gífurlega vel; fékk strax 2 fugla, á 10. og 11. holu, en fékk síðan skolla á par-4 14. holuna. Síðan komu góðir fuglar á 15. og 16. holu og Birgi Leif tókst að fá 3 pör á fyrstu 3 holurnar á fyrri hluta vallarins þ.e. 1.-3. holu vallarins (10.-12. holu á hring Birgis Leifs).
Birgir á rástíma kl. 6:30 til þess að klára síðustu 6 holurnar af 1. hring og fer síðan út kl. 10:10 að íslenskum tíma til þess að spila 2. hring.
Við vonum að sjálfsögðu að allt gangi vel hjá Birgi Leif í dag!!!
Til þess að sjá stöðuna á Open Blue Green Côtes d’Armor Bretagne mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
