Ragnheiður Jónsdóttir | september. 19. 2013 | 12:00

Birgir Leifur og Þórður Rafn í 16. sæti í Þýskalandi eftir 2. hring

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG og Þórður Rafn Gissurarson, GR,taka þátt í Q-school Evrópumótaraðarinnar á golfvelli Fleesensee Golf & Country Club í Göhren-Lebbin,  Þýskalandi.

Þórður Rafn Gissurarson, GR. Mynd: Golf 1

Þórður Rafn Gissurarson, GR. Mynd: Golf 1

Eftir 2 leikna hringi eru þeir Birgir Leifur og Þórður Rafn báðir í 16. sæti, sem þeir deila með 6 öðrum; báðir á samtals 4 undir pari, 140 höggum Birgir Leifur (68 72) og Þórður Rafn (71 69).

Báðir áttu þeir Birgir Leifur og Þórður Rafn rástíma kl. 12:40 að staðartíma (þ.e. 10:40 að íslenskum tíma) og eru því farnir út.

Fylgjast má með skori þeirra eftir 3. hring með því að SMELLA HÉR: (ath að taflan er ekki uppfærð fyrr en kylfingar hafa lokið hring)