Birgir Leifur Hafþórsson, GKG. Mynd: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2014 | 15:29

Birgir Leifur lék á 73 á 2. degi úrtökumótsins

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, er eini íslenski kylfingurinn, sem komst á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina, en mótið fer fram á PGA  Catalunya golfvellinum, í Girona á Spáni.  Spilað er á tveimur völlum: Stadium og Tour völlunum.

Birgir Leifur lék á Tour vellinum í dag og kom í hús á 3 yfir pari, 73 höggum; var með 3 fugla, 4 skolla og 1 tvöfaldan skolla.

Samtals er Birgir Leifur því á 5 yfir pari, 147 höggum (74 73).

Efsti maður mótsins er „Íslandsvinurinn“ Anhirban Lahiri frá Indlandi, sem m.a. lék Brautarholtsvöll í sumar. Lahiri hefir áður spilað á Evrópumótaröðinni, líkt og margir þátttakenda úrtökumótsins og er á samtals 9 undir pari, 133 höggum (65 68).

Það eru 25 efstu sem fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni og sem stendur er Birgir Leifur býsna langt frá því marki en hann deilir 130. sæti.

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á úrtökumótinu í Girona SMELLIÐ HÉR: