Birgir Leifur Hafþórsson verður með í Flórídaferðinni. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2017 | 06:00

Birgir Leifur lauk keppni T-19 í Kína

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lauk í nótt keppni á 2017 Hainan Open European Challenge Tour (á kínversku: 2017海南公开赛暨欧巡挑战赛 ), sem er mót á Áskorendamótaröð Evrópu.

Á 4. hring lék Birgir Leifur á sléttu pari, 72 höggum; fékk 2 fugla og 2 skolla.

Samtals lék Birgir Leifur á 9 undir pari, 279 höggum (71 65 71 92) og lauk keppni í 19. sætinu, sem hann deildi með 6 öðrum kylfingum (T-19).

Sigurvegari mótsins varð Erik van Rooyen frá S-Afríku, en hann lék á samtals 18 undir pari, 270 höggum (67 65 67 71).

Til þess að sjá lokastöðuna á Hainan Open SMELLIÐ HÉR: