Birgir Leifur Hafþórsson, GKG. Photo: Golf 1 Birgir Leifur í 4. sæti á Oldfield Open!!!!!
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG og Ólafur Björn Loftsson, NK, léku í dag 3. hring á 2. móti eGolf Professional mótaraðarinnar í Suður-Karólínu, Oldfield Open. Þátttakendur eru u.þ.b. 140 frá 15 þjóðlöndum.
Spilað er á golfvöllum tveggja klúbba: Oldfield Country Club og Callawassie Island Club. Í dag spiluðu allir 64 þátttakendur sem komust í gegnum niðurskurð golfvöll Oldfield Country Club.
Birgir Leifur er samtals búinn að spila á 5 undir pari, 211 höggum (68 73 70). Í dag lék Birgir Leifur á 2 undir pari, 70 höggum fékk 3 fugla, 14 pör og 1 skolla. Hann deilir 4. sætinu ásamt 3 kylfingum. Glæsilegt hjá Birgi Leif, sem fer upp um 9 sæti frá því í gær!!!
Ólafur Björn er samtals búinn að spila á 3 undir pari, 213 höggum (68 69 76). Ólafur Björn átti hring upp á 4 yfir pari, 76 högg í dag, þar sem dagsins ljós litu 2 fuglar, 11 pör, 4 skollar og 1 skrambi. Ólafur Björn deilir nú 12. sæti ásamt 2 öðrum kylfingum.
Í 1. sæti er sem fyrr Brent Witcher á 11 undir pari, 205 höggum (66 67 72).
Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á Oldfield Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
