Birgir Leifur Hafþórsson, GKG. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2013 | 21:00

Birgir Leifur á 3 undir pari eftir 1. dag

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hóf í dag leik á D + D Czech Challenge Open, en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.  Mótið fer fram í Golf & Spa Kunetická Hora í Drftec, í Tékklandi dagana 6.-9. júní 2013.

Eftir 1. dag deilir Birgir Leifur 34. sætinu ásamt 10 öðrum. Hann lék á 3 undir pari, 69 höggum; fékk 5 fugla, 10 pör og 3 skolla.

Til þess að sjá stöðun eftir 1. dag á Czech Open SMELLIÐ HÉR: