Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 16. 2016 | 07:00

Berglind, Guðrún Brá og Signý keppa á HM í Mexikó

Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, hefur valið þrjá kylfinga sem taka þátt á HM áhugamanna í kvennaflokki sem fram fer í Mexíkó 14.-17. september.

Keppt er um Espirito Santo verðlaunagripinn.

Liðið er þannig skipað; Berglind Björnsdóttir (GR), Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK) og Signý Arnórsdóttir (GK).

Texti: GSÍ