Viktór Ingi Einarsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2019 | 06:00

Bandaríska háskólagolfið: Viktor Ingi lauk keppni á 2.besta skori Missouri

Viktor Ingi Einarsson, GR og félagar í Missouri University (MIZZOU) tóku þátt í Inverness Intercollegiate, sem fór fram í Toledo, Ohio, dagana 23.-24. september 2019.

Þátttakendur voru 90 frá 15 háskólum.

Viktor Ingi var á næstbesta skori MIZZOU, lék á samtals 9 yfir pari, 222 höggum (75 76 71) og lauk keppni T-35 í einstaklingskeppninni.

MU Tigers, lið Viktors Inga lauk keppni T-10í liðakeppninni.

Sjá má lokastöðuna á Inverness Intercollegiate með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Viktors Inga og MIZZOU er XX. september n.k.