
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 19. 2013 | 19:15
Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra lauk leik í 13. sæti í einstaklingskeppninni á Jim West – Lið Texas State varð í 1. sæti!!!
Íslandsmeistarinn í höggleik 2012, Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og golflið Texas State luku í gær leik á Jim West Challenge mótinu.
Mótið fór fram dagana 17.-18. febrúar og var spilað á golfvelli Vaaler Creek golfklúbbsins í Blanco, Texas. Til að sjá heimasíðu klúbbsins SMELLIÐ HÉR:
Þátttakendur voru 64 frá 12 háskólum.
Valdís Þóra lék samtals á 11 yfir pari (79 76 81) og deildi 13. sæti í einstaklingskeppninni.
Valdís Þóra var á 3. besta skori í liði Texas State, en liðið vann liðakeppnina – varð í 1. sæti – Glæsilegt!!!
Næsta mót hjá Valdísi Þóru og „The Bobcats“ golfliði Texas State er Mountainview Collegiate mótið í Tucson, Arizona sem fram fer 15.-16. mars n.k.
Til þess að sjá úrslitin á Jim West Challenge mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024