Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, Íslandsmeistari í höggleik kvenna 2012 – en mótið fór fram á Strandarvelli – Hellu. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2013 | 17:10

Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra hefur leik á Jim West mótinu í Texas í dag

Íslandsmeistarinn í höggleik 2012, Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og Texas State hefur leik í dag á Jim West Challenge mótinu í dag.

Mótið fer fram dagana 17.-18. febrúar og er spilað á golfvelli Vaaler Creek golfklúbbsins í Blanco, Texas. Til að sjá heimasíðu klúbbsins SMELLIÐ HÉR:

Þátttakendur eru u.þ.b. 65 frá 12 háskólum.

Fylgjast má með gengi Valdísar Þóru á Jim West Challenge með því að SMELLA HÉR: