Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2020 | 12:00

Bandaríska háskólagolfið: Tumi & félagar lönduðu 10. sætinu í Georgia

Tumi Hrafn Kúld, GA og félagar í Western Carolina University (WCU) tóku þátt í Invitation at Savannah Harbor háskólamótinu, dagana 15.-16. febrúar og lauk mótinu í gær.

Mótið fór fram í The Club at Savannah Harbor í Savannah, Georgia.

Þátttakendur voru 99 frá 19 háskólum.

Tumi lék á samtals 8 yfir pari, 224 höggum (75 72 77) og varð T-45.

Hann var á 3. besta skori WCU, sem hafnaði í 10. sæti í liðakeppninni.

Sjá má lokastöðuna á Invitation at Savannah Harbour með því að SMELLA HÉR: 

Næsta mót WCU er í Fort Lauderdale í Flórída 2. mars n.k.