Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2019 | 07:15

Bandaríska háskólagolfið: Tumi & félagar luku keppni í 9. sæti í Sapphire

Tumi Hrafn Kúld, GA og félagar í Western Carolina University (WSU) tóku þátt í JT Poston Invitational, sem fram fór í Country Club of Sapphire Valley í Sapphire, Norður-Karólínu, dagana 30. september – 1. október 2019 og lauk því í gær.

Þátttakendur voru 87 frá 14 háskólum.

Tumi lék á samtals sléttu pari, 213 höggum (73 70 70) og varð T-42 í einstaklingskeppninni. Hann var á 3. besta skorinu í liði sínu.

Lið Tuma, WSU, lauk keppni í 9. sæti liðakeppninnar.

Sjá má lokastöðuna á JT Poston Invitational með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Tuma og WCU er 14. október n.k. í Arkansas