Ragnheiður Jónsdóttir | september. 13. 2013 | 21:30

Bandaríska háskólagolfið: Sunna á besta skori Elon í Momorial mótinu

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2013, Sunna Víðisdóttir, GR,  var við keppni á MOmorial mótinu.

Leikið var á golfvelli the Traditions Golf Club í Bryan, Texas.

Þetta var þriggja daga mót, sem stóð  9.-11. september og lauk því í fyrradag.  Þátttakendur voru 70 frá 12 háskólum.

Sunna lék á samtals 230 höggum (75 75 80) og lauk keppni í 31. sæti í einstaklingskeppninni.

Hún er á besta skorinu í liði sínu, golfliði Elon háskóla, sem lauk keppni í 10. sæti  liðakeppninni.

Næsta mót Sunnu og Elon er W&M Invitational, sem hefst nú á sunnudaginn í Kings Mill í Virginíu.

Sjá má úrslitin í Momorial með því að SMELLA HÉR: