Ragnheiður Jónsdóttir | september. 17. 2014 | 10:45

Bandaríska háskólagolfið: Sunna og Elon sigruðu á W&M mótinu í Virginíu!!!

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2013, Sunna Víðisdóttir, GR og golflið Elon tóku þátt í William & Mary mótinu, sem fram fór á Kingsmill golfvellinum í Williamsburg, Virginíu.

Mótið stóð dagana 14.-16. september og lauk því í gær.

Þátttakendur voru 13 háskólalið og Elon, skólalið Sunnu lauk leik í efsta sæti!!!

Sunna lék á samtals 8 yfir pari, 224 höggum (77 74 73) og lauk leik í 9. sæti í einstaklingskeppninni!!!  Stórglæsilegt!!!

Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG, sem er á 1. ári sínu í Elon var ekki í liðinu að þessu sinni.

Næsta mót Elon er Forest Oaks Fall Classic sem fram fer 29.-30. október n.k. í Greensboro, Norður-Karólínu.

Til þess að sjá lokastöðuna á Willam & Mary Inv. SMELLIÐ HÉR: