Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2014 | 10:35

Bandaríska háskólagolfið: Sunna og Berglind hófu leik á SoCon svæðismótinu

Í gær hófu Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Sunna Víðisdóttir, GR og Berglind Björnsdóttir, klúbbmeistari kvenna í GR, 2013 og félagar í golfliði UNGC keppni á SoCon Women´s Golf svæismótinu.

Berglind Björnsdóttir, GR, að keppa fyrir UNCG í Bandaríkjunum. Mynd: Spartans

Berglind Björnsdóttir, GR, að keppa fyrir UNCG í Bandaríkjunum. Mynd: Spartans

Mótið fer fram í Moss Creek golfklúbbnum á Hilton Head Island í Suður-Karólínu og er Norður-völlurinn spilaður.

Þátttakendur eru 45 frá 9 háskólum.

Sunna lék 1. hring á 79 og deilir 11. sætinu í einstaklingskeppninni.  Golflið Elon er í 4. sæti og þar telur skor Sunnu en hún er á 2. besta skorinu.

Berglind lék 1. hring á 83 höggum og er í 28. sæti í einstaklingskeppninni.  Lið UNCG er sem stendur í síðasta sætinu en Berglind er líkt og Sunna á 2. besta skorinu í liði sínu.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag SoCon svæðismótsins SMELLIÐ HÉR: