Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2014 | 09:40

Bandaríska háskólagolfið: Sunna lauk leik í 12. sæti Socon svæðismótsins – Berglind varð í 35. sæti

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Sunna Víðisdóttir, GR og Berglind Björnsdóttir, klúbbmeistari kvenna í GR, 2013 og félagar í golfliði UNGC tóku þátt í  SoCon Women´s Golf svæðismótinu.

Berglind Björnsdóttir, GR, að keppa fyrir UNCG í Bandaríkjunum. Mynd: Spartans

Berglind Björnsdóttir, GR, að keppa fyrir UNCG

Mótið fór fram í Moss Creek golfklúbbnum á Hilton Head Island í Suður-Karólínu og var Norður-völlurinn spilaður.

Þátttakendur voru 45 frá 9 háskólum.

Sunna lék samtals á 19 yfir pari 235 höggum (79 76 80) og deildi 12. sætinu í einstaklingskeppninni ásamt 2 öðrum.   Golflið Elon varð  í 4. sæti og þar taldi skor Sunnu en hún var á 2. besta skorinu.

Berglind lék á samtals  37 yfir pari, 253 höggum (83 78 92) og deildi 35. sætinu með Maddie MacClurg liðsfélaga sínum, í einstaklingskeppninni. Í liðakeppninni varð UNCG, lið Berglindar í 8. sæti, en Berglind var á 2.-3. besta skorinu í liði sínu og taldi það því.

Til þess að sjá lokastöðuna á SoCon svæðismótinu  SMELLIÐ HÉR: