Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2014 | 19:00

Bandaríska háskólagolfið: Sunna í 1. sæti e. 1. dag Seahawk Classic!!!!

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2013, Sunna Víðisdóttir, GR, og golflið Elon eru við keppni á UNCW Seahawk Classic mótinu, sem fram fer í River Landing, Wallace, Norður-Karólínu.

Mótið fer fram 4.-6. apríl 2014 og þátttakendur eru 50 frá 9 háskólum.

Sunna lék 1. hringinn á 3 undir pari, 69 höggum og er í efsta sæti eftir 1. dag. Á hringnum fékk Sunna 5 fugla og 2 skolla!!!

Sunna er jafnframt á besta skori golfliðs Elon, sem er í 1. sæti í liðakeppninni.  Stórglæsilegt hjá Sunnu og Elon!!!

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Seahawk Classic SMELLIÐ HÉR: