Stefán Þór Bogason, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 6. 2018 | 21:00

Bandaríska háskólagolfið: Stefán Þór lauk leik T-23 á Panther Inv.

Stefán Þór Bogason, GR og lið hans í bandaríska háskólagolfinu, Florida Tech luku leik í dag á Panther Invitational mótinu.

Mótið fer fram í Duran Golf Club, í Melbourne, Flórída og stóð dagana 4.-6. mars 2018.

Þátttakendur voru 68 frá 11 háskólum.

Stefán Þór lauk keppni T-23 með skor upp á samtals 227 högg (80 77 70) og lék sífellt betur eins og sjá má.

Florida Tech sendi tvö lið – og það sem Stefán Þór var í hafnaði í 7. sæti.

Sjá má lokastöðuna á Panther Invite með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Stefáns Þórs og Florida Tech er 11. mars n.k. í Valdosta í Georgíu.