Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 8. 2015 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Slæmur endir hjá Haraldi Franklín á Old Waverly

Haraldur Franklín Magnús, GR og golflið Louisiana Lafayette luku keppni á Old Waverly Collegiate Championship mótinu, sem fram fór í West Point, Mississippi.

Mótið stóð dagana 6.-7. apríl og lauk í gær. Þátttakendur voru 84 frá 15 háskólum.

Haraldur Franklín lék samtals á 8 yfir pari, 224 höggum (71 73 80) og varð T-50. Hann átti slæman lokahring eftir annars ágæta byrjun, en heldur óvanalegt er að sjá Harald fá 6 skolla og 2 skramba á golfhring, sem hann þó tók tilbaka með 2 fuglum. Lokastaðan 8 yfir pari á lokahringnum, sem einnig var heildarniðurstaðan, en fyrir lokahringinn var Haraldur Franklín á samtals sléttu pari e. 2 hringi.

Haraldur Franklín lauk samt keppni á 3. besta heildarskori Louisiana Lafayette.

Lið Louisiana Lafayette varð í lokasætinu í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á Old Waverly SMELLIÐ HÉR:

Næsta mót Haraldar og the Ragin Cajuns, golfliðs Louisiana Lafayette, er 19. apríl n.k.