Ragnheiður Jónsdóttir | október. 17. 2017 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Sigurlaug Rún T-25 e. 1. dag í Kansas

Sigurlaug Rún Jónsdóttir og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Drake, taka þátt í MVC Fall Preview mótinu, sem fram fer á Sand Creek Station Medal golfvellinum, í Newton Kansas, dagana 16.-17. október.

Mótinu lýkur því í dag.  Þátttakendur eru 69 frá 11 háskólum.

Í gær lék Sigurlaug Rún á 13 yfir pari, 157 höggum (81 76) og er T-25 þ.e. deilir 25. sætinu með 5 öðrum keppendum. Þetta er góður árangur hjá Sigurlaugu Rún en hún er meðal topp-36% keppenda!

Drake er í 9. sæti í liðakeppninni.

Fylgjast má með gengi Sigurlaugar Rún með því að SMELLA HÉR: 

Þetta er síðasta mót Sigurlaugar Rún og Drake á haustönn, en næstu mót eru ekki fyrr en eftir áramót.