Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2018 | 21:00

Bandaríska háskólagolfið: Sigurlaug Rún og félagar luku keppni í 5. sæti í Iowa

Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu Drake tóku þátt í Diane Thomason Invitational.

Mótið fór fram dagana 29.-30. september 2018 á Finkbine golfvellinum í Iowa City í Iowa.

Þátttakendur 54 frá 9 háskólum.

Sigurlaug Rún spilaði á samtals 243 höggum (79 83 81) og varð T-36 í einstaklingskeppninni en Drake hafnaði í 5. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á Diane Thomason Invitational  SMELLIÐ HÉR: 

Næsta mót Sigurlaugar Rún og Drake verður 1. október í Omaha, Nebraska.