Saga Traustadóttir spielt Golf mit Colorado State
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 26. 2019 | 03:00

Bandaríska háskólagolfið: Saga og félagar í 11. sæti e. 1. dag The Gold Rush

Saga Traustadóttir, GR og félagar í Colorado State University (CSU) taka þátt í The Gold Rush í Kaliforníu.

Mótið fer fram í Old Ranch CC, á Seal Beach í Kaliforníu, dagana 25.-26. febrúar 2019.

Þátttakendur eru 82 frá 15 háskólum.

Eftir 1. dag er Saga T-49 í einstaklingskeppninni, búin að spila á samtals 10 yfir pari, 154 höggum (79 75).

Lið CSU er í 11. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá stöðuna á The Gold Rush SMELLIÐ HÉR: