Særós Eva Óskarsdóttir, GKG
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2017 | 21:00

Bandaríska háskólagolfið: Særós Eva og Boston U luku keppni í 8. sæti í N-Karólínu

Særós Eva Óskarsdóttir, GKG og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu Boston University tóku þátt í Starmount Forest Fall Classic mótinu, sem fram fór í Greensboro, N-Karólínu, dagana 2.-3. október og lauk í dag.

Þátttakendur voru alls 66 frá 12 háskólum.

Særós Eva lék á samtals 243 höggum (80 79 84) og varð T-46 í einstaklingskeppninni.

Í liðakeppninni varð Boston University í 8. sæti.

Sjá má lokastöðuna í Starmount Forest Fall Classic mótinu með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Særósar Evu og Boston University er Yale Intercollegiate sem fram fer dagana 6.-8. október n.k. í New Haven, Conneticut.