Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2016 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Rúnar T-37 e. 2. dag í Big Ten

Rúnar Arnórsson, GK og golflið Minnesota háskóla keppa nú í Big Ten Championships.

Leikið er á Victoria National GC, í Newburgh, Indiana.

Rúnar hefir samtals spilað á 150 höggum (74 76) og er T-37 sem stendur, eftir 2. dag.

Þátttakendur í mótinu eru 70 frá 14 háskólum, bestu kylfingar á svæði Minnesota háskóla.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Big Ten Championship SMELLIÐ HÉR: