Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2016 | 22:00

Bandaríska háskólagolfið: Rúnar sigraði í Kalíforníu

Rúnar Arnórsson, GK og University of Minnesota, lék stórkostlegt golf eða á 62 höggum á fyrsta degi Barona Collegiate Cup háskólamótinu og setti glæsilegt skólamet.  Mótið fór fram í Lakeside, Kaliforníu.

Aldrei í sögunni hefir kylfingur frá Minnesota skólanum leikið golf á 10 höggum undir pari.

Í dag, 22. mars 2016 lauk mótinu með öruggum sigri Rúnars sem lék hringina þrjá á 9 höggum undir pari (62, 71, 74) og sigraði hann mótið glæsilega með þremur höggum á næsta keppanda.

Minnesota skóli Rúnars endaði í 2. sæti í mótinu á 16 höggum yfir pari.

Sjá má lokastöðuna í BArona Collegiate Cup með því að SMELLA HÉR: 

Næsta mót hjá Rúnari verður í Tempe Arizona 3.og 4. apríl.