Rúnar Arnórsson, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2018 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Rúnar og Minnesota luku keppni T-16

Rúnar Arnórsson, GK og lið hans í bandaríska háskólagolfinu, University of Minnesota tóku þátt í The Goodwin, en mótið fór fram á TPC Harding Park í San Francisco, Kaliforníu.

Mótið stóð dagana 29.-31. mars 2018 og lauk í gær.

Þetta var stórt mót, en þátttakendur voru 135 frá 26 háskólum.

Rúnar lauk keppni T-88 í einstaklingskeppninni á 9 yfir pari, 222 höggum (76 73 73).

Lið Rúnars, Minnesota lauk keppni T-16 í liðakeppninni.

Sjá má stöðuna á The Goodwin með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Rúnars og Minnesota er 14. apríl í Iowa.

Aðalfréttagluggi: Rúnar Arnórsson, GK. Mynd: Golf 1