Ragnheiður Jónsdóttir | september. 21. 2018 | 17:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur og félagar T-5 á Mercedes Benz Int.

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og félagar hennar í Earstern Kentucky háskólanum(EKU) urðu í 5. sæti á stóru háskólamóti sem fram fór dagana 17.-18. september sl., Mercedes Benz Intercollegiate

Mótsstaður var í Cherokee CC í  Knoxville, Tennessee.

Þátttakendur voru 93 frá 17 háskólum.

Ragnhildur varð T-41 í einstaklingskeppninni með skor upp á samtals 226 högg (80 77 69).

Lið Ragnhildar, EKU, varð T-5 þ.e. deildi 5. sætinu með 2 öðrum háskólaliðum.

Til þess að sjá lokastöðuna á Mercedes Benz Intercollegiate SMELLIÐ HÉR: 

Næsta mót Ragnhildar er 24. september n.k.