Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur með 2. sigur sinn á tímabilinu – Stórglæsileg!!!
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og félagar í Eastern Kentucky University (skammst.: EKU) tóku þátt í French Broad Collegiate Invitational.
Mótið fór fram dagana 8.-10. nóvember í The Cliffs at Walnut Cove, í Ashville Norður-Karólínu.
Þátttakendur voru 70 frá 13 háskólum.
Ragnhildur gerði sér lítið fyrir og sigraði og er þetta 2. sigur hennar á þessu haustmisseri. Auk þess hefir hún tvívegis verið í 2. sæti á keppnistímabilinu í einstaklingskeppnum.
Sigurskor hennar var samtals 5 yfir pari, 218 högg (78 70 70) – Þessi sigur er sérlega glæsilegur í ljósi þess að Ragnhildur var í 27. sæti eftir 1. keppnisdag, eftir að hafa spilað 1. hring á 7 yfir pari, 78 höggum.
Fjallað var um sigur Ragnhildar á vefsíðu EKU í grein sem bar fyrirsögnina „Ragnhildur sigrar aftur“ – Sjá með því að SMELLA HÉR:
Lið EKU varð í 2. sæti í liðakeppninni.
Sjá má lokastöðuna á French Broad Collegiate Invitational með því að SMELLA HÉR:
Næsta mót Ragnhildar og félaga er á vormisseri, í Jacksonville, Flórída, 14. febrúar 2022.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
