Ragnar Már Garðarsson, GKG, sigurvegari 1. móts Eimskipsmótaraðarinnar 2014, Nettó-mótsins. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2015 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már við keppni á TPC Sawgrass – McNeese í 5. sæti á Sea Best Inv. e. fyrri dag

Ragnar Már Garðarson, GKG og golflið McNeese eru svo sannarlega að standa sig vel á Sea Best Invitational mótinu, sem fram fer á þem fræga velli TPC at Sawgrass í Dye´s Valley.   Mótið fer fram dagana 2.-3. febrúar 2015.

TPC Sawgrass

TPC Sawgrass

Í gær voru spilaðir tveir hringir og lék Ragnar Már á samtals 153 höggum (79 74).

Á seinni hring var Ragnar Már á 3. besta skorinu í liði sínu og telur skor hans því, en McNeese er jafnt UNLV í 5. sæti keppninnar eftir fyrri dag.

Alls taka þátt 81 frá 15 háskólum.

Til þess að sjá stöðuna á Sea Best Invitational eftir fyrri dag SMELLIÐ HÉR: