Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2012 | 05:10

Bandaríska háskólagolfið: Ólafur Loftsson í 8. sæti á Irish Creek Collegiate

Í gær hófst í Kannapolis í Norður-Karólínu, Irish Creek Collegiate. Í mótinu taka þátt 75 kylfingar frá 13 háskólum. Meðal þátttakenda er Ólafur Björn Loftsson, NK og lið hans Charlotte.

Ólafur Björn spilaði fyrstu 2 hringina á samtals -4 undir pari, samtals 138 höggum (71 67) og þann seinni í gær á glæsilegum 67 höggum, þ.e. -3 undir pari.

Ólafur Björn deilir 8. sæti með Chris Malec frá Louisville og er búinn að spila langbest af liði Charlotte.

Charlotte er í 4. sæti í liðakeppninni. Lokahringurinn verður spilaður í dag.

Til þess að sjá stöðuna eftir fyrri dag Irish Creek Collegiate smellið HÉR: