Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2012 | 22:30

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn var á 78 höggum 2. dag Women´s East Regional

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Wake Forest tekur þátt í svæðisúrslitum Austurdeildarinnar (ens.: NCAA D1 Women´s East Regional) á golfvelli Penn State, í Pennsylvaníu.  Í dag var 2. hringurinn spilaður í þessu móti þar sem þátt taka 126 stúdentar frá 24 háskólum.

Ólafía Þórunn spilaði 1. hring  77 höggum en var á 78 höggum í dag. Hún er T-77.  Ólafía Þórunn var á 4. besta skori liðs síns, en Cheyenne Woods, frænka Tigers spilaði best allra í liðinu var á 73 höggum og hækkaði sig úr T-39 í T-24.

Lið Wake Forest er T-16 af þeim 24 háskólaliðum sem þátt taka.

Til þess að sjá úrslit eftir 2. dag  NCAA D1 Women´s East Regional smellið HÉR: