Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn og WF luku leik í 5. sæti – Berglind og UNCG voru í 18. sæti
Klúbbmeistari GR 2013, Berglind Björnsdóttir og Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Ólafía Þórunn Björnsdóttir tóku þátt í The Landfall Tradition mótinu, sem lauk í gær á Dye golfvellinum í Wilmington, Norður-Karólínu.
Þátttakendur voru 96 frá 18 háskólum.
Ólafía Þórunn lék á samtals 11 yfir pari, 227 höggum (76 75 76). Hún deildi 22. sætinu í einstaklingskeppninni og var á 2.-3. besta skori Wake Forest og taldi skor hennar því í 5. sætis árangri Wake Forest.
Berglind lék á samtals 28 yfir pari, 244 höggum (81 78 85). Hún var á besta til næstbesta skori golfliðs UNCG, en liðið virðist hafa verið í einhverju óstuði og í raun sama hvernig Berglind lék lokahringinn, liðið hafnaði í 18. og neðsta sæti.
Þetta var síðasta mót Ólafíu Þórunnar i bandaríska háskólagolfinu fyrir jól – næsta mót Wake Forest er ekki fyrr en 9. febrúar á næsta ári.
Næsta mót Berglindar er einnig á næsta ári þ.e. 17. febrúar en þá mun hún spila á Central District mótinu í Flórída.
Til þess að sjá lokastöðuna á The Landfall Tradition SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

