
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn í 6. sæti á ACC Women´s Golf Championship eftir 2. dag
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og lið hennar Wake Forest taka þátt í ACC Women´s Golf Championship í bandaríska háskólagolfinu. Þátttakendur eru 45 frá 9 háskólum.
Á 2. degi mótsins sem fram fór í dag spilaði Ólafía á +6 yfir pari, 78 höggum, og færðist við það niður um 4 sæti frá því í gær þegar hún deildi 2. sætinu með þeim Lindy Duncan og Stacy Kim í Duke. Samtals er Ólafía Þórunn búin að spila á +5 yfir pari, samtals 148 höggum (70 78). Ólafía deilir nú 6. sætinu með 2 öðrum Jessicu Negron frá Flórída State og liðsfélaga sínum, frænku Tiger, Cheyenne Woods, sem átti góðan hring upp á 72 högg í dag og er því líka á +5 yfir pari, 148 höggum (76 72).
Lið Wake Forest deilir nú 4. sæti með liði Virginíu-háskóla.
Til þess að sjá stöðuna eftir 2. hring ACC Women´s Golf Championship smellið HÉR:
- mars. 31. 2023 | 16:30 Gary Player þarf að „grátbiðja“ til að fá að spila á Augusta National
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Sigurbergsdóttir – 23. mars 2023
- mars. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Peter McEvoy og Davíð Arthur Friðriksson – 22. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore