Ragnheiður Jónsdóttir | október. 12. 2013 | 16:30

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn og Wake Forest í 11. sæti eftir 1. dag Tar Heel mótsins

Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest taka um þessar mundir þátt í Ruth Chris´s Tar Heel Invitational mótinu.

Gestgjafi er háskólinn í Norður-Karólínu (University of North Carolina) og leikið er á Chapel Hill í Norður Karólínu.

Mótið stendur dagana 11.-13. október 2013.  Þátttakendur eru 96 frá 18 háskólum.

Eftir 1. dag er Ólafía Þórunn í 38. sæti í einstaklingskeppninni, með hring upp á 2 yfir pari, 73 högg.

Ólafía Þórunn er á 3. besta skori Wake Forest, en liðið er í 11. sæti í liðakeppninni.

Til þess að fylgjast með gengi Ólafíu Þórunnar SMELLIÐ HÉR: