Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 13. 2013 | 09:00

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn á besta skorinu af liði Wake Forest eftir 2. hring í Kaliforníu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og „The Demon Deacons“, golflið Wake Forest háskólans, eru nú við keppni á Northrop Grumman National Challenge í Palos Verdes, Kaliforníu.

Alls eru þátttakendur í mótinu 88 frá 16 háskólum.

Eftir 2. dag deilir  Ólafía Þórunn 30. sætinu, eftir að hafa spilað samtals á 8 yfir pari, 150 höggum (76 74).

Ólafía Þórunn bætti sig um 2 högg og fór upp um 5 sæti frá því á fyrri hring.

Hún er á besta skorinu í liði the Decons, en liðið deilir 12. sætinu í liðakeppninni.

Lokahringur Northrop Grumman National verður spilaður í dag.

Til þess að fylgjast með gengi Ólafíu Þórunnar SMELLIÐ HÉR: