Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2012 | 03:00

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn spilaði lokahringinn á Women´s East Regional á 75 höggum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Wake Forest tók þátt í svæðisúrslitum Austurdeildarinnar (ens.: NCAA D1 Women´s East Regional) á golfvelli Penn State, í Pennsylvaníu.  Í gær var lokadagurinn í þessu móti þar sem þátt tóku 126 stúdentar frá 24 háskólum.

Ólafía Þórunn spilaði 3. hring  á 75 höggum, fékk 2 fugla og 5 skolla. Samtals spilaði Ólafía Þórunn á + 14 yfir pari, 230 höggum (77 78 75)    Ólafía Þórunn var á 4. besta skori liðs síns, en Cheyenne Woods, frænka Tigers spilaði best allra í liðinu.

Lið Wake Forest varð í 14. sæti  af þeim 24 háskólaliðum sem þátt tóku.

Til þess að sjá úrslit á NCAA D1 Women´s East Regional smellið HÉR: