
Bandaríska háskólagolfið: Kristján Þór á 74 höggum! Fór upp um 14 sæti á Southland Conference Championship
Kristján Þór Einarsson, GK, er svo sannarlega að spila vel á Southland Conference Championship í Mc Kinney, Texas. Hann er ásamt golfliði Nicholls State að spila á SCC, þar sem þátttakendur eru 50 frá 10 háskólum.
Í gær voru Kristján Þór og Andri Þór Björnsson, GR, báðir á 77 höggum. Í dag bætti Kristján Þór sig um 3 högg, spilaði á 74 höggum en Andri Þór á 79 höggum. Pétur Freyr Pétursson, GR, er að spila veikur og er í neðsta sæti.
Samtals er Kristján Þór búinn að spila á +7 yfir pari, 151 höggi (77 74) og er T-14, þ.e. fór upp um 14 sæti, en hann var í 28. sæti í gær. Í dag fékk Kristján Þór 4 skolla og 2 fugla.
Andri Þór er búinn að spila á +12 yfir pari, 156 höggum (77 79) og er T-29. Hann var með 1 skramba, 7 skolla og 2 fugla á skorkortinu í dag.
Lið Nicholls State er í 9. sæti af háskólaliðunum, eins og í gær.
Golf 1 óskar þeim Kristjáni Þór, Andra Þór og Pétri Frey og Nicholls State góðs gengis á morgun!
Til þess að sjá stöðuna eftir 2. hring á Southland Coference Championship, smellið HÉR:
- júní. 7. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stefanía M. Jónsdóttir – 7. júní 2023
- maí. 19. 2023 | 19:00 GKS: GA tekur við rekstri Siglo Golf
- maí. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingjaldur Valdimarsson – 19. maí 2023
- apríl. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórey Petra ——– 18. apríl 2023
- apríl. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ragna Björk Ólafsdóttir – 17. apríl 2023
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1