Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 19. 2020 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Jóhannes & félagar urðu í 5. sæti í Louisiana

Jóhannes Guðmundsson, GR og félagar í Stephen F Austin State University tóku þátt í La Tour Intercollegiate háskólamótinu.

Þátttakendur voru 68 frá 12 háskólum.

Mótið fór fram í La Tour golfklúbbnu í Mathews, Louisiana, dagana 17.-18. febrúar og lauk í gær.

Jóhannes lék á samtals sléttu pari, 216 höggum (68 78 70) og varð T-35 í einstaklingskeppninni.

Hann var á 3. besta skori liðs síns, sem hafnaði í 5. sæti mótsins.

Sjá má lokastöðuna á La Tour Intercollegiate með því að SMELLA HÉR: 

Næsta mót Stephen F Austin State University er 24. febrúar n.k.