Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla og The Royals urðu í 2. sæti á Hilton Head Lakes Inv – Stefanía Kristín og The Falcons í 9. sæti
Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og golflið Queens háskóla „The Royals“ náðu þeim glæsilega árangri að verða í 2. sæti á Hilton Head Lakes Invitational í Suður-Karólínu, en mótið fór fram 11.-12. mars s.l. Þáttakendur voru 68 frá 13 háskólum.
Íris Katla var á 3. besta skorinu í liði sínu og taldi því skor hennar í glæsiárangri „The Royals.“ Íris Katla lék á samtals 154 höggum (77 77) í einstaklingskeppninni og lauk keppni T-11, þ.e. deildi 11. sætinu með öðrum.
Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, klúbbmeistari GA 2012, tók einnig þátt í mótinu ásamt golfliði Pfeiffer háskóla „The Falcons“ og var þetta 1. mótið á vordagskrá skólans og að því er best er vitað 1. mót Stefaníu Kristínar í vor.
Stefanía Kristín spilaði á samtals 166 höggum (84 82) og varð í 39. sæti í einstaklingskeppninni. Hún var á 3. besta skori liðs síns og taldi skor hennar því í árangri Pfeiffer háskóla sem lauk keppni í 9. sæti.
Íris Katla og „The Royals“ og Stefanía Kristín og félagar hennar í „The Falcons“ spila næst á Pinehurst Challenge, 18.-19. mars n.k. í Norður-Karólínu.
Til þess að sjá stöðuna í Hilton Head Lakes Invitational SMELLÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

