Afmæliskylfingurinn í kaddýstörfum. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2014 | 09:15

Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla og „The Royals“ luku leik í 5. sæti í Tennessee

Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og golflið Queens, The Royals tóku þátt í 2014 Food Lion SAC Women’s Golf Championship, svæðismótinu.

Mótið stóð dagana 13.-15. apríl 2014 og lauk í gærkvöldi.

Gestgjafar voru Carson-Newman University, South Atlantic Conference, & Tusculum Women’s Golf  og mótið fór fram í Sevierville, Tennessee.

Þátttakendur í mótinu voru 60 frá 11 háskólum.

Íris Katla lék á samtals 41 yfir pari, 257 höggum (84 82 91) og lauk leik í 18. sæti í einstaklingskeppninni.  Hún varð á 2. besta skorinu af „The Royals“ sem höfnuðu í 5. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á 2014 Food Lion SAC Women’s Golf Championship  SMELLIÐ HÉR: