Hrafn Guðlaugson, GSE and Faulkner University. Photo: In Hrafns possession
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 15. 2014 | 09:00

Bandaríska háskólagolfið: Hrafn í 2. sæti eftir 2. dag NAIA National Championship

Hrafn Guðlaugsson, GSE og golflið Faulkner taka sem stendur þátt í  NAIA National Championship.

Mótið fer fram dagana 13.-16. maí á Champions golfvelli LPGA International, á Daytona Beach, Flórída.  Þátttakendur eru 156 frá 29 háskólum.

Eftir 2. dag er Hrafn á besta skori Faulkner liðsins, en hann er búinn að leika á samtals  3 undir pari, 141 glæsihöggi (71 70)  Í einstaklingskeppninni er Hrafn í  2. sætinu, sem er stórglæsilegur árangur!!!

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag í einstaklingskeppni NAIA SMELLIÐ HÉR: 

Faulkner er í 1. sæti í liðakeppninni!!!

Sjá má stöðuna eftir 1. dag í liðakeppninni með því að SMELLA HÉR: